Spurning

Hver er munurinn á gleri og kristalli?

Spyrjandi

María Johnson

Svar

Gler er myndlaust efni þar sem uppröðun efniseindanna (sameindanna) er óregluleg. Þetta efnisform fæst með snöggkælingu á heitum fljótandi efnismassa. Hrafntinna er dæmi um steintegund á glerformi. Gleri má líkja við mjög seigfljótandi vökva.

Í kristalli raða efnisagnirnar sér hinsvegar upp í reglulega grind. Þegar kristallur brotnar leggjast brotfletirnir eftir plönum eða sléttum (e, planes) í þessarri grind. Demantur er dæmi um kolefni (C) á kristallsformi. Kolefni getur líka raðast í aðra kristallsgrind og kallast þá grafít. Það er til dæmis í blýöntunum okkar.

Demantur er kolefni (C) á kristallsformi.

Í daglegu tali á orðið gler oftast við gegnsætt myndlaust efni sem er að mestu úr kísli (Si) með íblöndun af kalsíni (Ca), natríni (Na) og blýi (Pb), öll á oxíðformi, það er að segja bundin súrefni (O). Við notum þetta efni í rúður og ílát af ýmsu tagi.

Eiginleika glersins má stilla af með styrk efna sem blandað er í það. Þetta getur til að mynda átt við um ljósbrotsstuðull og stífni. Blýríkt, skorið og slípað gler er kallað „kristall“ í daglegu tali, þótt þar sé ekki um grindaruppröðun að ræða. Blýið gefur efninu hærri ljósbrotsstuðul og þar með aðra speglunareiginleika en venjulegt gler hefur. Stífni efnisins verður líka meiri og því fæst hreinni og langdregnari tónn þegar slegið er í kristallsglas en glas úr venjulegu gleri.

Þess má geta að lokum að beyging orðsins ‚kristall/kristallur‘ er nokkuð á reiki. Eðlisfræðingar þurfa mikið að nota þetta orð og hafa komið sér niður á beyginguna kristallur, kristall, kristalli, kristalls; fleirtala kristallar, kristalla, kristöllum, kristalla.

Frekara lesefni á Vísindavefnum:
Mynd:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur18.8.2008

Tilvísun

Ari Ólafsson, Sveinn Ólafsson og Hafliði Pétur Gíslason. „Hver er munurinn á gleri og kristalli?“. Vísindavefurinn 18.8.2008. http://visindavefur.is/?id=48643. (Skoðað 21.5.2013).

Höfundar

Ari Ólafssondósent í eðlisfræði við HÍSveinn Ólafssoneðlisfræðingur við RaunvísindastofnunHafliði Pétur Gíslasonprófessor í tilraunaeðlisfræði



Leit


Vísindadagatalið

Robert Owen
(1771-1858)
( Fyrri Næsti )

Velskur stjórnspekingur, einn af frumkvöðlum sósíalisma og samvinnuhreyfingar. Hélt því fram að persónuleiki mótaðist af umhverfi, sbr. mannauðshugtakið nú á dögum.

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans