Spurning

Hvað er menningarmannfræði og félagsmannfræði?

Spyrjandi

Jóna Ottesen

Svar

Mannfræði fæst við mannskepnuna sem lífveru, menningarveru og félagsveru. Þetta blandast þó ætíð og eru menningarmannfræði og félagsmannfræði reyndar svo nátengdar greinar að erfitt er að greina á milli.

Menningarmannfræði fæst einkum við hvernig maðurinn hefur í sig og á, þau verkfæri sem hann notar, hvernig hann skýlir sér gegn veðri og vindum og hugmyndir hans um lífið og tilveruna.

Félagsmannfræðin reynir að útskýra félagskerfi mannsins og hvernig samskipum hans við annað fólk er háttað, bæði vini og óvini.

Menningarmannfræði styðst vissulega við félagsmannfræði og öfugt. Þegar dýpst er skoðað rennur þetta allt saman þó að það geti auðveldað umræðu og rannsóknir að greina nokkuð á milli hinna einstöku þátta mannfræðinnar.

Frekara lesefni á Vísindavefnum:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur18.6.2004

Tilvísun

Haraldur Ólafsson mannfræðingur. „Hvað er menningarmannfræði og félagsmannfræði?“. Vísindavefurinn 18.6.2004. http://visindavefur.is/?id=4356. (Skoðað 19.6.2013).

Höfundur

Haraldur Ólafsson mannfræðingurfyrrv. prófessor í mannfræði við HÍ



Leit


Vísindadagatalið

György Lukács
(1885-1971)
( Fyrri Næsti )

Ungverskur heimspekingur, bókmenntafræðingur og marxisti, einn af höfundum vestræns marxisma. Fjallaði m.a. um hlutgervingu, stéttarvitund og um raunsæi í bókmenntum.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans

Háskóli unga fólksins 2013