Spurning
Hver eru lengstu göng Íslands?
Spyrjandi
Viktor Eiríkur Ragnarsson, f. 1993
Svar
Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Vegagerðarinnar eru tíu jarðgöng á vegakerfinu.Lengstu veggöngin eru Héðinsfjarðargöng sem opnuð voru 2. október 2010. Þau eru 11.000 m löng og eru í raun tvenn göng sem tengja saman Siglufjörð og Ólafsfjörð með viðkomu í Héðinsfirði. Göngin milli Ólafsfjarðar og Héðinsfjarðar eru 6.900 m en á milli Héðinsfjarðar og Siglufjarðar eru göngin 3.700 m. Auk þess eru vegskálar við alla gangamunn alls 450 m.
Næst lengst eru Vestfjarðagöng undir Breiðadals- og Botnsheiði milli Skutulsfjarðar (sem Ísafjörður stendur við), Önundarfjarðar og Súgandafjarðar. Þau eru 9.120 m löng en ólík öðrum veggöngum á Íslandi að því leyti að þau eru þriggja arma. Nánar tiltekið þá er Tungudalsleggur (sem liggur frá Skutulsfirði) um 2.000 m langur, Breiðadalsleggur (sem liggur frá Önundarfirði) er um 4.000 m og Botnsdalsleggur (sem liggur frá Súgandafirði) er um 3.000 m.
Þar á eftir koma Fáskrúðsfjarðargöng sem eru 5.900 m, Hvalfjarðargöng sem eru 5.770 m, Bolungarvíkurgöng 5.400 m og Múlagöng sem eru 3.400 m.
Þess má geta að það var ekki fyrr en rétt fyrir miðja síðustu öld (1948) sem fyrstu veggöngin á Íslandi voru tekin í notkun. Þá var sprengt í gegnum Arnardalshamar sem er 30 m þykkur berggangur á leiðinni milli Ísafjarðar og Súðavíkur.
Frekara lesefni af Vísindavefnum:
- Hver er lengsta og stærsta íslenska brúin? eftir Hauk Hannesson
- Hver er vatnsmesta á Íslands? eftir EDS
- Hvað fara margir í gegnum Hvalfjarðargöngin að meðaltali á hverjum degi? eftir SHB
Heimild: Vegagerðin
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur30.4.2004
Flokkun:
Efnisorð
jarðgöng veggöng Héðinsfjarðargöng Vestfjarðagöng Hvalfjarðargöng Fáskrúðsfjarðargöng Múlagöng Arnardalshamar
Tilvísun
EDS. „Hver eru lengstu göng Íslands?“. Vísindavefurinn 30.4.2004. http://visindavefur.is/?id=4205. (Skoðað 19.5.2013).
Höfundur
EDSlandfræðingur og starfsmaður Vísindavefsins




