Spurning

Af hverju er ekki lofthjúpur utan um allar plánetur?

Spyrjandi

Særún Rafnsdóttir

Svar

Fyrir þessu geta verið ýmsar ástæður en algengast er að þetta stafi af því að það sé of heitt á yfirborði reikistjörnunnar eða plánetunnar. Hiti í gasi eða lofti er í rauninni hreyfing sameindanna. Ef hitinn er mikill getur hreyfingin orðið svo ör að allar sameindirnar losna einfaldlega frá yfirborði hnattarins og rjúka "út í buskann" (það er að segja út í geiminn). Þetta á til dæmis við um reikistjörnuna Merkúríus í okkar sólkerfi. Hann er einmitt næstur sól af reikistjörnunum og þar er því hitinn mestur. Auk þess er hann raunar frekar lítill þannig að þyngdarkraftur frá honum við yfirborð er tiltölulega veikur og heldur ekki sameindum loftsins vel að yfirborðinu.

Þessi rök smæðarinnar eiga líka við um tunglið okkar. Það er frekar lítið, til dæmis miðað við jörðina, og hefur því einfaldlega misst lofthjúpinn sem það kann að hafa haft í upphafi. Nágranninn, jörðin, hefur líka ef til vill átt sinn þátt í að slíta sameindir loftsins frá tunglinu.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur31.3.2004

Tilvísun

ÞV. „Af hverju er ekki lofthjúpur utan um allar plánetur?“. Vísindavefurinn 31.3.2004. http://visindavefur.is/?id=4120. (Skoðað 25.5.2013).

Höfundur

ÞVprófessor emeritus, ritstjóri Vísindavefsins 2000-2010 og ritstjóri Evrópuvefsins 2011



Leit


Vísindadagatalið

Kristján Eldjárn
(1916-1982)
( Fyrri Næsti )

Fornleifafræðingur og síðar forseti, skrifaði m.a. bókina Kuml og haugfé 1957 og átti mikinn þátt í að efla áhuga á fornleifafræði hér á landi.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans