Spurning
Eru meiri líkur á að fá húðkrabbamein í ljósabekkjum en í sól?
Spyrjandi
Erla Jónsdóttir, f. 1989
Svar
Skaðsemi sólarljóssins má rekja til útfjólublárra geisla en útfjólublátt ljós skiptist í tvær gerðir, UVA og UVB. Ljósabekkir eru frábrugðnir sólinni að því leyti að ljós þeirra inniheldur eingöngu UVA-geisla sem hafa lengri bylgjulengd en UVB-geislarnir. En það eru UVB-geislarnir sem valda því að við brennum í sólinni.
Fyrst þegar ljósabekkir komu fram var talið að þeir væru skaðlausir þar sem í ljósi þeirra væru ekki UVB-geislar og því óhætt að nota þá að vild án þess að því fylgdi krabbameinshætta. En nýjar rannsóknir, meðal annars rannsóknir á frumum eða sýnum úr mönnum þar sem rannsökuð er líffræðileg hegðun frumanna, benda einmitt til þess að UVA-geislar sem eru í sólbekkjunum séu ekki síður hættulegir en UVB-geislarnir og hugsanlega hættulegri. Ástæðan er sú að UVA-geislarnir komast dýpra inn í húðina heldur en UVB-geislarnir og geta þannig haft víðtækari áhrif, meðal annars á frumur ónæmiskerfisins.
Það er ekki hægt að svara spurningunni Eru meiri líkur á að fá húðkrabbamein í ljósabekkjum en í sól? játandi eða neitandi. En það er nokkuð ljóst að ljósabekkir eru ekki hættulausir eins og áður var talið og hugsanlega eru þeir hættumeiri en sólarljósið, en nægilegar upplýsingar til þess að skera úr um það liggja ekki fyrir á þessu stigi.
Að lokum skal bent á heimasíðuna cutis.is en þar er að finna frekari fróðleik um ljósabekki og húðkrabbamein.
Á Vísindavefnum er að finna fleiri áhugaverð svör um krabbamein, til dæmis svör Helgu Ögmundsdóttur við spurningunum: Mynd:
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur16.2.2004
Flokkun:
Efnisorð
krabbamein húðkrabbamein ljósabekkir sólarljós sólbruni húð geislar UVA UVB
Tilvísun
Bárður Sigurgeirsson. „Eru meiri líkur á að fá húðkrabbamein í ljósabekkjum en í sól?“. Vísindavefurinn 16.2.2004. http://visindavefur.is/?id=4004. (Skoðað 20.6.2013).
Höfundur
Bárður Sigurgeirssonhúðsjúkdómalæknir





