Spurning
Er í lagi að drekka vatn úr ám og lækjum?
Spyrjandi
Jón Ingvar Jónsson
Svar
Neysluvatn er skilgreint sem matvæli og því eru vatnsveitur með eigið eftirlit rétt eins og matvælafyrirtæki og undir eftirliti heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga. Allt er þetta gert til þess að tryggja öryggi neytenda.
Ár og lækir eru ekki undir slíku eftirliti og rannsóknir hafa sýnt að þetta vatn getur verið mengað þannig að gæði þess standist ekki neysluvatnskröfur. Allir þeir sem neyta yfirborðsvatns úti í náttúrunni verða að vita að þeir eru að taka áhættu varðandi vatnsgæðin. Því er ekki rétt að hvetja ferðamenn til þess að neyta yfirborðsvatns og vekja með þeim falska öryggiskennd. Þeir eiga rétt á að vita að þeir séu að taka áhættu og eiga að taka hana á eigin ábyrgð.
Sjá einnig svör sama höfundar við spurningunum:
- Hvernig er ástand neysluvatns á Íslandi?
- Hvernig er mengun grunnvatns á Íslandi samanborið við Norðurlöndin?
Upprunalega spurningin hljóðar svona:
Getum við með góðri samvizku sagt ferðamönnum í óbyggðum landsins að það sé í lagi að drekka vatn úr ám og lækjum?
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur22.5.2003
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
Gunnar Steinn Jónsson. „Er í lagi að drekka vatn úr ám og lækjum?“. Vísindavefurinn 22.5.2003. http://visindavefur.is/?id=3440. (Skoðað 25.5.2013).
Höfundur
Gunnar Steinn Jónssonlíffræðingur, Umhverfisstofnun





