Spurning
Hver var Arkímedes?
Spyrjandi
Valur Bjarnason, f. 1986
Svar
Lesa má um Arkímedes á Vísindavefnum í svari við spurningunni Hvernig dó Arkímedes? Hér verður aðeins bætt við það svar.Arkímedes var grískur stærð- og eðlisfræðingur. Talið er að hann hafi fæðst um 287 f. Kr. og dáið árið 212 f. Kr. Arkímedes reiknaði meðal annars út yfirborð kúlu og rúmmál kúlu og sívalnings. Hann uppgötvaði lögmál sem við hann er kennt og kveður á um að þyngd hlutar sem sökkt er í vökva, minnkar um þyngd þess vökva sem hann ryður frá sér. Það er kallað lögmál Arkímedesar.
Arkímedes var frægur á fornöld fyrir að hafa fundið upp Arkímedesarskrúfuna. Hana fann hann upp meðan hann heimsótti Egyptaland og þess vegna hefur hún líka verið kölluð Egypska skrúfan. Rómverjar notuðu hana mikið, til þess að dæla upp úr ám og vötnum eða vatni úr námum.

Heimildir og mynd:
- Íslensk alfræðiorðabók, Örn og Örlygur, Reykjavík 1990
- Um Arkímedes á vefsetri Drexel University
Þetta svar er eftir grunnskólanema á námskeiði Vísindavefsins sem haldið er í samvinnu við samtökin Heimili og skóla og Fræðslumiðstöð Reykjavíkurborgar vegna bráðgerra barna.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur14.3.2003
Efnisorð
Tilvísun
Valgerður Sigurðardóttir. „Hver var Arkímedes?“. Vísindavefurinn 14.3.2003. http://visindavefur.is/?id=3239. (Skoðað 19.5.2013).
Höfundur
Valgerður Sigurðardóttirgrunnskólanemi í Ölduselsskóla




