Spurning

Hver er munurinn á miðbaug og hádegisbaug?

Spyrjandi

Unnur Þorláksdóttir

Svar

Upphaflega spurningin var sem hér segir:
Af hverju er miðbaugur kallaður hádegisbaugur?
Miðbaugur er alls ekki kallaður hádegisbaugur enda er hér um tvo mismunandi hluti að ræða.

Miðbaugur (e. equator) skiptir jörðinni í tvo hluta, norðurhvel og suðurhvel, og samsíða honum liggja breiddarbaugarnir. Nánar má lesa um bauganet jarðar í svari Emilíu Dagnýjar Sveinbjörnsdóttur við spurningunni Hvernig er bauganet jarðar uppbyggt og hver eru hnit Íslands á hnettinum?.

Miðbaugur himins er beint yfir miðbaug jarðar og skiptir himinkúlunni í tvo jafna hluta á sama hátt og miðbaugur jarðar skiptir henni í tvennt. Miðbaugur er hornréttur á stefnuna til himinpólanna. Himinhvelfingin virðist snúast um þá frá austri til vesturs, þannig að fastastjörnur færast í sífellu samhliða miðbaug.

Hádegisbaugur (e. meridian), oftar nefndur hábaugur, er skilgreindur svo í orðabanka Íslenskrar málstöðvar:
stórhringur sem menn hugsa sér á himinkúlunni gegnum himinpól og hvirfilpunkt (hápunkt himins) á athugunarstað; liggur einnig um norður- og suðurpunkt á sjónhring athugunarstaðar. Hábaugur og lengdarbaugur staðarins liggja í sömu sléttu eða plani. Himintungl eru í hágöngu þegar þau fara um hádegisbaug, t.d. er sól þá í hádegisstað
Stórhringur er sá ferill sem verður til þegar kúla er skorin með sléttu sem gengur í gegnum miðju hennar. Stysta leiðin milli tveggja punkta á yfirborði kúlu er eftir stórbaug sem liggur um þá.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur11.2.2003

Tilvísun

Einar Örn Þorvaldsson og Þorsteinn Vilhjálmsson. „Hver er munurinn á miðbaug og hádegisbaug?“. Vísindavefurinn 11.2.2003. http://visindavefur.is/?id=3125. (Skoðað 24.5.2013).

Höfundar

Einar Örn Þorvaldssonháskólanemi og starfsmaður VísindavefsinsÞorsteinn Vilhjálmssonprófessor emeritus, ritstjóri Vísindavefsins 2000-2010 og ritstjóri Evrópuvefsins 2011



Leit


Vísindadagatalið

Janusz Korczak
(1878-1942)
( Fyrri Næsti )

Pólskur barnalæknir, kennslufræðingur og barnabókahöfundur. Rak munaðarleysingjahæli fyrir gyðingabörn í Varsjá og sýndi þeim virðingu, en lét svo lífið ásamt þeim.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans