Spurning
Hver eru helstu frumefni líkamans?
Spyrjandi
Erla Rut Káradóttir, f. 1989
Svar
Helstu frumefni líkamans eru súrefni (O), kolefni (C), vetni (H) og nitur (N). Samtals eru þessi fjögur efni um 96% af heildarmassa líkamans. Ef við skoðum nánar hvar þau koma fyrir og hlutfall hvers efnis af heildar líkamsmassa er röðin eftirfarandi:- Súrefni (O) 65,0% - Er í vatni og lífrænum efnum, nauðsynlegt fyrir frumuöndun.
- Kolefni (C) 18,5% - Er í öllum lífrænum efnum.
- Vetni (H) 9,5% - Er í vatni, öllum mat og flestum lífrænum efnum.
- Nitur (N) 3,2% - Finnst í öllum prótínum og kjarnsýrum (DNA og RNA).
- Kalk (Ca) 1,5% - Nauðsynlegt fyrir hörku tanna og beina og fyrir margs konar líkamsstarfsemi, til dæmis blóðstorknun og samdrátt vöðva.
- Fosfór (P) 1,0% - Er í mörgum prótínum, öllum kjarnsýrum og ATP (orkumiðli frumunnar), nauðsynlegt byggingarefni tanna og beina.
- Kalín (K) 0,4% - Algengasta plúsjón í frumum, mikilvæg fyrir taugaboð og vöðvasamdrátt.
- Brennisteinn (S) 0,3% - Er í mörgum prótínum.
- Natrín (Na) 0,2% - Algengasta plúsjónin í utanfrumuvökva, nauðsynleg í blóði til að viðhalda vökvajafnvægi og fyrir taugaboð og vöðvasamdrátt.
- Klór (Cl) 0,2% - Algengasta mínusjónin í utanfrumuvökva, nauðsynleg í blóði og millifrumuvökva til að viðhalda vökvajafnvægi.
- Magnesín (Mg) 0,1% - Nauðsynlegt fyrir starfsemi margra ensíma.
- Joð (I) 0,1% - Nauðsynlegt fyrir myndun skjaldkirtilshormóna.
- Járn (Fe) 0,1% - Er í blóðrauða sem flytur súrefni um líkamann og í sumum ensímum sem eru nauðsynleg til framleiðslu ATP.
Heimild:
Gerard J. Tortora (1997): Introduction to the Human Body - The Essentials of Anatomy and Physiology. Menlo Park, California: Benjamin Cummings.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur23.9.2002
Flokkun:
Tilvísun
Þuríður Þorbjarnardóttir. „Hver eru helstu frumefni líkamans?“. Vísindavefurinn 23.9.2002. http://visindavefur.is/?id=2734. (Skoðað 24.5.2013).
Höfundur
Þuríður Þorbjarnardóttirlíffræðingur





