Spurning
Hvaða hlutverki gegnir ristillinn?
Spyrjandi
Kristján Sveinsson
Svar
Ristillinn tekur við fæðumauki úr smáþörmunum. Meltingu er að mestu leyti lokið þegar fæðan kemur í ristilinn. Það sem eftir er af henni fer fram fyrir tilstuðlan baktería, því að ristillinn myndar engin meltingarensím. Einnig mynda ristilgerlar K-vítamín.Enn á eftir að soga vatn, steinefni og örlítið af vítamínum úr fæðunni þegar í ristilinn er komið. Slímhimnan (slíman) í ristlinum sér um að koma þessum næringarefnum út í blóðrásina og með henni til allra frumna líkamans. Það er af þessum ástæðum sem sýking í ristlinum leiðir til niðurgangs, það er ef slíman starfar ekki rétt er vatnið ekki sogað upp og berst því niður í endaþarminn og þaðan út. Langvarandi niðurgangur getur verið hættulegar vegna vatnstaps og taps á nauðsynlegum steinefnum.
Saurmyndun fer fram í ristlinum en í honum eru dauðir ristilgerlar, dauðar slímufrumur, og ómeltanleg efni úr fæðunni. Ómeltanlegu efnin eru aðallega trefjaefni sem eru fjölsykrur úr jurtaafurðum. Trefjaefni eru gjarnan kölluð burðarefni hægða, þar sem þau binda margfalda þyngd sína af vatni og gera þar með hægðirnar mjúkar og auðlosanlegar.
Sjá einnig svar sama höfundar við spurningunni Hvað gerir maginn? og svar Bjarna Þjóðleifssonar við spurningunni Hvaða hlutverk hefur gallblaðran?
Heimild:
Gerard J. Tortora (1997): Introduction to the Human Body - The Essentials of Anatomy and Physiology. Menlo Park, California: Benjamin Cummings.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur23.9.2002
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
Þuríður Þorbjarnardóttir. „Hvaða hlutverki gegnir ristillinn?“. Vísindavefurinn 23.9.2002. http://visindavefur.is/?id=2732. (Skoðað 23.5.2013).
Höfundur
Þuríður Þorbjarnardóttirlíffræðingur





