Spurning

Hve gömul er latína?

Spyrjandi

Sigurbjörg Guđmundsdóttir

Svar

Ítalíska mállýskan latína heitir eftir Latverjum sem settust ađ í Latíum ţar sem síđar var Róm, stofnuđ 753 fyrir Krist ađ sögn Rómverja. Ţetta mál var í ţađ minnsta talađ frá 800 f.Kr. og líklega fyrr. Međ Rómverjum breiddist latínan út um Ítalíuskagann og síđan Rómaveldi. Ritmáliđ ţróađist eftir ţörfum ţjóđfélagsins. Eitt elsta dćmiđ eru svonefnd Tólftaflnalög frá miđri 5. öld f.Kr., sem ţó hafa hvorki varđveist heil né í upphaflegri mynd. Í ţeirri mynd hefur varđveist afar fátt sem er eldra en frá miđri 3. öld f.Kr. Elstu heilu ritverkin eru gamanleikir eftir Plátus frá upphafi 2. aldar f.Kr.

Ritmáliđ, og öll rómversk menning, varđ fyrir miklum áhrifum grísku á miđri 3. öld f.Kr. Ţađ varđ ađ lokum ađ ţví máli sem almennt nefnist klassísk latína, ritmáli sem helst má lesa hjá höfundum tímabilsins 90 f.Kr. til 120 e.Kr. og var líklega allfrábrugđiđ mćltu alţýđumáli. Ţó voru alltaf mikil tengsl milli alţýđumáls og ritmáls. En alţýđumáliđ breyttist í ólíkar mállýskur eftir svćđum og međ tíđ og tíma í hin ýmsu rómönsku mál, svo sem ítölsku, spćnsku, frönsku, rúmensku og retórómönsku. Ţetta hefur gerst fyrir tíđ Karlamagnúsar (742? - 814). Ritmáliđ varđ hins vegar ađ miđaldalatínu sem ţó er harla ólík klassískri latínu.

Mynd:

Um ţessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur27.8.2002

Tilvísun

Svavar Hrafn Svavarsson. „Hve gömul er latína?“. Vísindavefurinn 27.8.2002. http://visindavefur.is/?id=2656. (Skođađ 21.5.2013).

Höfundur

Svavar Hrafn Svavarssonprófessor í heimspeki viđ HÍ



Leit


Vísindadagatalið

Robert Owen
(1771-1858)
( Fyrri Nćsti )

Velskur stjórnspekingur, einn af frumkvöđlum sósíalisma og samvinnuhreyfingar. Hélt ţví fram ađ persónuleiki mótađist af umhverfi, sbr. mannauđshugtakiđ nú á dögum.

Ađalstyrktarađili

Happdrćtti Háskólans