Spurning

Hversu hollir eru bananar?

Spyrjandi

Guðlaugur Guðjónsson

Svar

Bananar eru mjög næringarríkir, meðal annars er mikill mjölvi í þeim auk þess sem þeir eru mettandi. Þeir eru líka mikilvæg uppspretta A-, B- og E-vítamína og í þeim er mjög mikið af steinefnum eins og fosfóri, járni, kalki og sinki.

Það er auðvelt að melta banana og þeir eru því góð fæða fyrir þá sem stundum fá nánar tilteknar meltingartruflanir. Bananar koma upphaflega frá SA-Asíu og Ástralíu en nú er hægt að rækta þá í næstum hvaða hitabeltisumhverfi sem er.

Næringargildi í 100 g
Orka90 kcal
Prótein1,2 g
Fita0,3 g
Kólesteról0 g
Kolvetni20,2 g
Trefjar1,8 g


Frekara lesefni á Vísindavefnum:
  • Hvenær voru bananar fyrst ræktaðir á Íslandi? eftir Ívar Daða Þorvaldsson
  • Heimildir og mynd:
    Spurningin hljóðaði upprunalega svona:
    Hversu hollir eru bananar? Hvaða vítamín eru í þeim? hvað eru margar kaloríur í 100g?

    Þetta svar er eftir nemendur í Háskóla unga fólksins, námskeiðum á vegum HÍ fyrir 12-16 ára ungmenni í júnímánuði 2008.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur16.6.2008

Tilvísun

Aníta Hinriksdóttir og Andrea Sif Sigurðardóttir. „Hversu hollir eru bananar?“. Vísindavefurinn 16.6.2008. http://visindavefur.is/?id=26179. (Skoðað 22.5.2013).

Höfundar

Aníta Hinriksdóttirnemandi í Háskóla unga fólksinsAndrea Sif Sigurðardóttirnemandi í Háskóla unga fólksins



Leit


Vísindadagatalið

Sofia Kovalevskaya
(1850-1891)
( Fyrri Næsti )

Rússneskur stærðfræðingur, ein fyrsta konan í Evrópu sem lauk doktorsprófi og varð fullgildur prófessor. Rannsakaði m.a. hlutafleiðujöfnur, sporbaugsheildi og hringa Satúrnusar.

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans

Háskóli unga fólksins 2013