Spurning
Hvernig eyðist Amasonskógurinn og hversu mikið af honum hverfur daglega og á einu ári?
Spyrjandi
Auður Harðardóttir, f. 1994
Svar
Það var ekki fyrr en upp úr 1970 að regnskógareyðing fór að verða vandamál í Amasonregnskóginum og þá sérstaklega eftir að 5300 km löng hraðbraut (e. Trans Amazonian Highway) var lögð þvert í gegnum skóginn í Brasilíu árið 1972. Með hraðbrautinni jókst aðgangur manna að skóginum og hraði skógareyðingar margfaldaðist. Skógareyðing í Brasilíu hefur fylgt efnhagsástandi landsins nokkuð vel, á krepputímum er minna eytt en góðærum fylgir meiri eyðing. Í fyrstu voru það aðallega kúabændur og fátækir smábændur sem eyðilögðu skóginn en í dag er hægt að skipta eyðingu Amasonskógarins í Brasilíu í 5 hópa:- Beitilönd fyrir nautgripi: Þetta er og hefur alltaf verið ein aðalástæða skógareyðingar í Amason.
- Landnám fátækra bænda: Yfirvöld hafa hvatt nokkur hundruð þúsund fjölskyldur til að nema land í regnskógum. Hver fjölskylda brennir lítinn skika og notar þangað til jarðvegurinn verður ófrjór, það tekur yfirleitt um 5 ár, eins og hægt er að lesa um í svari við spurningunni Af hverju er svona hættulegt að eyða regnskógum, vaxa þeir ekki bara strax upp aftur? Eftir þann tíma þarf að halda áfram að brenna meiri regnskóg.
- Mannvirkjagerð: Amasonhraðbrautin sem byggð var 1972 er gott dæmi um þá eyðileggingu sem mannvirki geta valdið í regnskógum. Því miður er ekkert lát á áframhaldandi vegagerð og gerð stífla fyrir vatnsaflsvirkjanir.
- Landbúnaður: Síðustu ár hefur orðið sprenging í ræktun á sojabaunum í regnskógum Amason. Sojabaunirnar eru aðallega notaðar í dýrafóður og talið er að McDonalds og fleiri skyndibitakeðjur í samstarfi við landbúnaðarrisann Cargill séu orsök eyðingar tugþúsunda ferkílómetra af regnskógi síðustu árin. Hætta er einnig á að ræktun olíupálma muni fara þar vaxandi því eftirspurn eftir pálmaolíu í heiminum fer ört vaxandi og hefur nú þegar valdið gífurlegri regnskógareyðingu í Suðaustur-Asíu.
- Skógarhögg Það er ólöglegt að höggva tré í Brasilíu nema með sérstöku leyfi og einungis á ákveðnum svæðum. Ólöglegt skógarhögg er engu að síður stundað mjög víða.
![]() |
Heimildir og mynd:
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur9.2.2012
Efnisorð
Amason skógur Amasonskógurinn skógareyðing hraði beitilönd landnám mannvirkjagerð landbúnaður skógarhögg tölur
Tilvísun
Rannveig Magnúsdóttir. „Hvernig eyðist Amasonskógurinn og hversu mikið af honum hverfur daglega og á einu ári?“. Vísindavefurinn 9.2.2012. http://visindavefur.is/?id=24115. (Skoðað 24.5.2013).
Höfundur
Rannveig Magnúsdóttirlíffræðingur





