Spurning
Er til íslensk sérsveit?
Spyrjandi
Bjarni Barkarson
Svar
Í stuttu máli, já. Íslenska sérsveitin heyrir undir ríkislögreglustjóra og er hún vopnuđ sérsveit lögreglunnar, stundum kölluđ Víkingasveitin. Hún var stofnuđ 19. október áriđ 1982 en ţá höfđu fyrstu sérsveitarmennirnir hlotiđ viđeigandi ţjálfun hjá norsku sérsveitinni. Ţá ţótti orđiđ löngu tímabćrt ađ hafa vopnađa sérsveit til taks. Međal annars gerđist ţađ áriđ 1976 ađ vopnađir flugrćningjar lentu á Keflavíkuflugvelli en ţeir stoppuđu ţó stutt.Sérsveitin er međal annars kölluđ til ţegar vopnum er beitt og lífi er ógnađ. Valdbeiting er ţó ávallt síđasta úrrćđi hennar en áđur en til hennar kemur skipar samningatćkni veigamikinn sess í úrlausn vandamála sveitarinnar. Hún sinnir vopnađri gćslu ţegar ţess er ţörf, ţá helst ţegar erlendir ţjóđhöfđingjar eđa ađrir háttsettir einstaklingar heimsćkja landiđ. Sérsveitarmenn sinna ţó mest megnis hefđbundnum löggćslustörfum, óvopnađir, og koma auk ţess ađ ţjálfun og frćđslu lögreglumanna. Síđustu ár hafa liđsmenn úr sérsveitinni veriđ nokkuđ áberandi vegna tíđra mótmćla, ekki síst í Búsáhaldabyltingunni svokölluđu.

Í ársáćtlun ríkislögreglustjóra fyrir áriđ 2009 kemur fram ađ markmiđ sérsveitarinnar séu međal annars ađ verjast og bregđast viđ hryđjuverkum og sjá um gerđ áćtlunar vegna öryggismála ríkisins, til dćmis vegna mikilvćgra mannvirkja. Auk ţess vinna ađ áćtlun komi til skot- eđa sjálfsmorđssprengjuárása og hafa eftirlit međ ţekktum afbrotamönnum.
Sérsveit ríkislögreglustjóra hefur haft starfsstöđ á Suđurnesjum frá 1. janúar 2007 eftir ađ lögregluembćtti ţar voru sameinuđ. Nú starfa 40 manns hjá sérsveit ríkislögreglustjóra.
Heimildir:
- Wikipedia.com - Sérsveit ríkislögreglustjóra.
- Kynning á embćtti ríkislögreglustjóra.
- Ársáćtlun ríkislögreglustjóra.
- Ţjóđviljinn - Rćningjarnir gerđu stuttan stans í Keflavík í gćrdag.
- Upplýsingar um fjölda sérsveitarmanna fengnar frá embćtti ríkislögreglustjóra.
Mynd:
- FindTarget Reference. Sótt 22.6.2010.
Um ţessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur28.6.2010
Flokkun:
Tilvísun
ÍDŢ. „Er til íslensk sérsveit?“. Vísindavefurinn 28.6.2010. http://visindavefur.is/?id=22262. (Skođađ 26.5.2013).
Höfundur
ÍDŢ




