Spurning

Hver var Augusto Pinochet?

Spyrjandi

Arnar Sigurbjörnsson

Svar


Augusto Pinochet (1915-2006).
Augusto José Ramón Pinochet Ugarte var hershöfðingi og síðar einræðisherra Síle. Hann var giftur Lucía Hiriart de Pinochet og eignuðust þau fimm börn. Pinochet fæddist 25. nóvember 1915 og hann lést 10. desember árið 2006.

Pinochet komst til valda árið 1973 eftir byltingu hersins gegn Salvador Allende forseta. Byltingarmenn nutu stuðnings Bandaríkjanna á ýmsan hátt þó Bandaríkin væru opinberlega á móti byltingunni. Pinochet er talinn hafa pyntað um 30.000, tekið um 80.000 manns til fanga og látið myrða 1200-3200 manns, þar á meðal konur og börn.

Árið 1988 voru haldnar kosningar um framtíð þingsins og forsetaembættisins. Valkostirnir voru eftirfarandi:
  • Já, það er hvort Pinochet ætti að sverja embættiseið 11. mars 1989 og sitja áfram sem forseti. Auk þess yrðu haldnar lýðræðislegar þingkosningar 9 mánuðum eftir embættistöku en þingið myndi síðan hefja störf 11. mars 1990.
  • Nei, það er hvort Pinochet ætti að hætta 11. mars 1990 og við tæki lýðræðislega kjörinn forseti og lýðræðislega kjörið þing.
Úrslit kosninganna urðu þannig að 55,9% sögðu nei en 44,1% sögðu já.

Þegar Augusto Pinochet lést árið 2006 voru enn 300 dómsmál tengd honum er lágu fyrir dómstólum í Síle.

Heimild og mynd:
Þetta svar er eftir nemendur í Háskóla unga fólksins, námskeiðum á vegum HÍ fyrir 12-16 ára ungmenni í júnímánuði 2012.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur13.6.2012

Tilvísun

Magnús Fannar Benediktsson og Örn Arnarson. „Hver var Augusto Pinochet?“. Vísindavefurinn 13.6.2012. http://visindavefur.is/?id=20440. (Skoðað 20.6.2013).

Höfundar

Magnús Fannar Benediktssonnemandi í Háskóla unga fólksinsÖrn Arnarsonnemandi í Háskóla unga fólksins



Leit


Vísindadagatalið

Marteinn Lúter
(1483-1546)
( Fyrri Næsti )

Þýskur guðfræðingur, oft talinn upphafsmaður siðaskiptanna. Andmælti aflátssölu og valdi páfans, taldi Biblíuna einu heimildina um orð Guðs og lagði áherslu á lestur hennar.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans

Háskóli unga fólksins 2013