Spurning
Hvað eru til mörg nöfn á Íslandi?
Spyrjandi
Kolbrún Þóra Eiríksdóttir, f. 1988, Rakel Rún
Svar
Spurningunni er ekki auðvelt að svara. Svarið fer eftir því við hvað er miðað. Ef átt er við þann fjölda nafna sem Íslendingar hafa borið svo vitað sé eru nöfnin rúmlega 6000. Ef aðeins er átt við þau nöfn sem nú eru í notkun eru þau heldur færri. Árið 1983, þegar ég lét athuga fyrir mig fjölda nafna á þjóðskrá, voru kvenmannsnöfn 2538 en karlmannsnöfn 1994. Frá þeim tíma hafa einstaklingar fallið frá sem voru einir um nafn en aðrir bæst við með nýjum nöfnum. Mannanafnanefnd samþykkir á mánuði hverjum 5-10 ný nöfn.Til fróðleiks má geta þess að nafnaforðinn hefur verið að aukast jafnt og þétt á síðustu öldum. Árið 1703, þegar fyrsta manntalið var tekið, voru á skrá 387 karlmannsnöfn og 338 kvenmannsnöfn. Í manntalinu 1910 voru karlmannsnöfn 1071 en kvenmannsnöfn 1279.
Sjá einnig:
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur4.7.2001
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
Guðrún Kvaran. „Hvað eru til mörg nöfn á Íslandi?“. Vísindavefurinn 4.7.2001. http://visindavefur.is/?id=1765. (Skoðað 20.5.2013).
Höfundur
Guðrún Kvaranprófessor






