Spurning
Hvenær deyr mannkynið? Hvenær deyr sólin?
Spyrjandi
Bjarki Freyr Hauksson
Svar
Með þessu svari er einnig svarað spurningu Arnars Jóns Óskarssonar, 12 ára: Hvenær klárar sólin eldsneyti sitt?Erfitt er að segja til um hve langa framtíð mannkynið á fyrir höndum á jörðinni, enda er saga þess mjög skammvinn miðað við sögu jarðar og sólar. Framtíðin fer meðal annars eftir því hvort mönnum lærist að lifa í sátt og samlyndi og hvort þeir gæta þess að spilla ekki umhverfi sínu um of.
Sólin er talin mynduð fyrir nálægt 5 milljörðum ára. Hún hefur í iðrum sínum mikinn forða vetnis sem hún brennir af svo miklum krafti að á hverri sekúndu breytast 600 milljón tonn af vetni í helín við svonefndan kjarnasamruna. Við þetta losnar mikil orka sem geislar frá henni út í geiminn og hitar meðal annars andrúmsloft jarðar sem hefur nú mátulegt hitastig til að mannkynið geti hafst þar við.
Yfirleitt hefur verið talið að vetnisforði sólar mundi endast nálægt 5 milljörðum ára til viðbótar. Þó er vitað að nokkur breytileiki getur verið í útgeislun hennar þótt hann hafi verið smávægilegur eftir að mannkynið kom til sögunnar.
Samkvæmt þeirri þekkingu sem vísindamenn hafa aflað sér um æviferla sólstjarna er ljóst að ekki þarf um þessar mundir að hafa áhyggjur af endalokum sólar. Þegar þar að kemur, eftir óralangan tíma, má búast við að afkomendur okkar verði svo langt komnir á þróunarbrautinni að þeir nái að flytjast til annars sólkerfis í tæka tíð.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur29.2.2000
Tilvísun
Þorsteinn Þorsteinsson. „Hvenær deyr mannkynið? Hvenær deyr sólin?“. Vísindavefurinn 29.2.2000. http://visindavefur.is/?id=164. (Skoðað 22.5.2013).
Höfundur
Þorsteinn Þorsteinssonjarðeðlisfræðingur við Raunvísindastofnun





