Spurning
Snúast allar reikistjörnurnar rangsćlis eins og jörđin?
Spyrjandi
Ţorgils Árni Hjálmarsson, f. 1991
Svar
Í sólkerfinu okkar eru átta reikistjörnur, ţar af ferđast allar átta rangsćlis á braut sinni um sólu en sex ţeirra snúast rangsćlis um möndul sinn. Reikistjörnurnar sem snúast ekki rangsćlis um möndul sinn eru Venus og Úranus. Venus snýst réttsćlis en Úranus liggur nánast á hliđ međ möndulhalla 98° frá lóđréttu. Ţar sem möndulhallinn er meiri en 90° telst Úranus snúast réttsćlis líkt og Venus.Taliđ er ađ bćđi Venus og Úranus hafi upphaflega snúist rangsćlis en árekstrar viđ smástirni hafa valdiđ breytingum á möndulhalla Úranusar og snúningi beggja reikistjarnanna. Ţessi mismunandi snúningur reikistjarna er ekki eingöngu bundinn viđ sólkerfiđ okkar.
Frekara lesefni á Vísindavefnum:
- Getiđ ţiđ sagt mér eitthvađ um plánetuna Venus? eftir Sćvar Helga Bragason
- Hvers vegna snýst jörđin um sjálfa sig? eftir Einar Örn Ţorvaldsson
- Hvernig geta hnettirnir snúist í kringum sólina? eftir ŢV
- en.wikipedia.org - Retrograde motion
- Á hvern hátt er Úranus frábrugđinn hinum reikistjörnunum? eftir Sćvar Helga Bragason
- Curious About Astronomy: What direction do planets rotate?
- en.wikipedia.org - Uranus. Sótt 9.6.2011.
Ţetta svar er eftir nemendur í Háskóla unga fólksins, námskeiđum á vegum HÍ fyrir 12-16 ára ungmenni í júnímánuđi 2011.
Um ţessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur9.6.2011
Tilvísun
Gođi Blöndal Hermannsson og Sindri Freyr Bjarnason. „Snúast allar reikistjörnurnar rangsćlis eins og jörđin?“. Vísindavefurinn 9.6.2011. http://visindavefur.is/?id=13750. (Skođađ 25.5.2013).
Höfundar
Gođi Blöndal Hermannssonnemandi í Háskóla unga fólksinsSindri Freyr Bjarnasonnemandi í Háskóla unga fólksins





