Spurning
Hvað er sortuæxli og hvað gerir það?
Spyrjandi
Jóhann Grétar Gizurarson, f. 1986
Svar
Sortuæxli eru illkynja æxli sem eiga uppruna sinn í litarfrumum húðarinnar. Þau geta myndast í fæðingarblettum sem fyrir eru eða komið í ljós sem nýir blettir. Þess vegna er fólki ráðlagt að hafa auga með slíkum blettum og leita læknis ef breyting verður á fæðingarbletti. Örsjaldan geta þessi æxli einnig vaxið út frá lithimnu augans. Ef húð verður fyrir útfjólublárri geislun, annað hvort af sólarljósi eða úr lömpum, eykst hættan á illkynja æxlisvexti. Þannig er til dæmis tíðni þessara æxla há meðal útivinnandi fólks í sólríkum löndum og tíðnin meðal Íslendinga hefur aukist með auknum sólarlandaferðum. Þetta á þó sérstaklega við um þá sem eru ljósir á hörund því dökkur húðlitur verndar. Við sem erum með ljósa húð ættum því að nota sólarkrem með góðum varnarstuðli þegar við förum í sólina og gæta þess vel að brenna ekki.Sortuæxli eru í 6. sæti fyrir konur og 12. sæti fyrir karla í algengisröð krabbameina á Íslandi og greinast að meðaltali 18 konur og 12 karlar á ári.
Meðan sortuæxlið er staðbundið er yfirleitt auðvelt að fjarlægja það með skurðaðgerð. Ef þessi æxli ná hins vegar að dreifa sér til eitla og síðan annarra líffæra og mynda meinvörp geta þau verið með illvígari æxlum. Þegar svo er komið er beitt lyfjameðferð. Sortuæxli eru þó að sumu leyti nokkuð sérkennileg og í rauninni eina krabbameinsæxli manna sem getur vakið mjög ákveðna ónæmissvörun. Þetta hefur verið þekkt lengi fyrir það að læknar tóku eftir því að sjúklingar með þessi æxli gátu átt það til að læknast eins og fyrir kraftaverk. Á síðari árum hafa læknar og vísindamenn síðan reynt að notfæra sér þetta og notið þá hliðsjónar af stóraukinni þekkingu í ónæmisfræði. Of snemmt er að segja að ónæmismeðferð gegn sortuæxlum sé komin af tilraunastigi en tilraunirnar lofa góðu.
Sjá einnig eftirfarandi svör um krabbamein:
Eftir sama höfund
- Er allt krabbamein lífshættulegt?
- Hvað er það sem gerist í frumunum þegar við fáum krabbamein?
- Eru til krabbameinsdrepandi efni?
- Getur maður fengið krabbamein í hjartað?
- Hve margar geta krabbameinsfrumur í blóði orðið?
- Krabbameinsfrumur verjast með jákvæðri rafhleðslu. Getur verið að frumurnar losi sig við Ca-jónir, til að mynda +hleðslu?
Eftir Magnús Jóhannsson
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur12.3.2001
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
Helga Ögmundsdóttir. „Hvað er sortuæxli og hvað gerir það?“. Vísindavefurinn 12.3.2001. http://visindavefur.is/?id=1374. (Skoðað 20.6.2013).
Höfundur
Helga Ögmundsdóttirprófessor í læknisfræði við HÍ




