Spurning

Af hverju þarf maður að pissa oftar og fyrr eftir kaffi- og bjórdrykkju en eftir til dæmis djús eða mjólk?

Spyrjandi

Bylgja Hilmarsdóttir

Svar


Manneken Pis er eitt þekktasta kennileitið í Brussel.
Þvagmagn sem myndast hverju sinni fer fyrst og fremst eftir því hversu mikinn vökva maður drekkur en það er rétt hjá spyrjanda að það er ekki alveg sama hver vökvinn er.

Í kaffi og bjór eru efni sem hafa bein áhrif á þvagmyndun. Þessi efni virka þó á ólíkan hátt.

Í bjór er etanól sem hindrar heilann í að seyta svokölluðu þvagtemprandi hormóni sem heldur þvagmyndun í skefjum með því að auka endursog vatns í nýrunum. Ef minna er seytt af þessu hormóni myndast meira þvag og þá pissar maður meira.

Koffín í kaffi truflar endursog natrínjóna sem leiðir til minna endursogs á vatni og þar af leiðandi er meira myndað af þvagi.

Heimildir og mynd:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur10.5.2012

Tilvísun

Þuríður Þorbjarnardóttir. „Af hverju þarf maður að pissa oftar og fyrr eftir kaffi- og bjórdrykkju en eftir til dæmis djús eða mjólk?“. Vísindavefurinn 10.5.2012. http://visindavefur.is/?id=13359. (Skoðað 19.6.2013).

Höfundur

Þuríður Þorbjarnardóttirlíffræðingur



Leit


Vísindadagatalið

György Lukács
(1885-1971)
( Fyrri Næsti )

Ungverskur heimspekingur, bókmenntafræðingur og marxisti, einn af höfundum vestræns marxisma. Fjallaði m.a. um hlutgervingu, stéttarvitund og um raunsæi í bókmenntum.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans