Spurning
Hver var fyrsti forseti Íslands?
Spyrjandi
Fanndís Hávarðardóttir, f. 1990
Svar
Fyrsti forseti lýðveldisins var Sveinn Björnsson (1881-1952), sem var kjörinn 17. júní 1944 og sat til dánardægurs 1952.Annar forseti Íslands var Ásgeir Ágeirsson (1894-1972) sem sat í 16 ár, frá 1952—1968.
Árið 1968 varð Kristján Eldjárn forseti (1917-1982). Hann sat frá 1968 til 1980.
Vigdís Finnbogadóttir var fjórði forseti lýðveldisins og sat 16 ár, líkt og Ásgeir Ásgeirsson, frá 1980-1996 er Ólafur Ragnar Grímsson var kjörinn fimmti forseti Íslands en hann situr enn.
Frekara lesefni á Vísindavefnum:
- Hversu oft er kosið um forseta? eftir EDS
- Getur forsetinn rofið þing eða þarf forsætisráðherrann að gera það? eftir Árna Helgason
- Wikipedia.is. Sótt 4.8.2010.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur29.11.2000
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
HMH. „Hver var fyrsti forseti Íslands?“. Vísindavefurinn 29.11.2000. http://visindavefur.is/?id=1192. (Skoðað 19.6.2013).
Höfundur
HMHheimspekingur og fyrrverandi starfsmaður Vísindavefsins




