Spurning
Hver yrðu áhrif sólarljóssins á jörðina ef ekki væri raki í andrúmsloftinu sem dreifir og endurkastar því?
Spyrjandi
Elísa Guðrún Brynjólfsdóttir, Sigrún
Helga Ásgeirsdóttir, Eyrún María
Guðmundsdóttir, Sigþór Árnason
Svar
Í stuttu máli má segja að raki eða vatnsgufa í lofthjúpnum sé ein af gróðurhúsalofttegundunum. Líklegast er því að minni raki í loftinu mundi leiða til nokkurrar kólnunar. Málið er þó talsvert flókið eins og nánar kemur fram í textanum hér á eftir.
Lofthjúpur jarðar fær nær allan sinn varma með geislun frá sólinni. Því má nærri geta að endurkast og gleypni jarðaryfirborðs og lofts gagnvart sólarljósi skiptir miklu um hitafar í lofthjúpnum. Vatnsgufa er þeirrar náttúru að hún gleypir sólargeislun lítt í sig, heldur hleypir henni að mestu í gegnum sig. Langbylgjugeislun frá jörðu eða jarðgeislun á hins vegar mun erfiðara með að komast gegnum rakt loft. Því stuðlar raki að hærri hita við yfirborð jarðar með sama hætti og aðrar svokallaðar gróðurhúsalofttegundir.
Ef vatnsgufan þéttist í dropa sem mynda ský eykst endurkast sólgeislunar frá því sem væri í heiðríkju. Á hinn bóginn draga ský úr varmatapi vegna jarðgeislunar og talið er að þau áhrif fari langt með að vega upp endurkast sólgeislunar ef litið er til jarðarinnar í heild sinni.
Geislunarferlin í andrúmsloftinu eru nokkru flóknari en hér er gefið til kynna. Þannig má nefna að loftið gleypir hluta sólgeislunar sem endurvarpast af skýjum og sendir frá sér langbylgjugeislun sem aftur er að einhverju marki gleypt við yfirborð jarðar eða öðrum loftlögum. Þá eru ský mishátt yfir jörð og getur hæð þeirra og hiti haft veruleg áhrif á hlutverk þeirra í geislunarbúskapnum.
Áhrif skýja á geislunarjafnvægi jarðarinnar er ein þeirra breytistærða í reikningum á loftslagsbreytingum sem háð er hvað mestri óvissu. Viðamiklar rannsóknir standa yfir víða um heim á myndun og þróun skýjakerfa svo unnt verði að segja til um hlut þeirra í geislunarjafnvægi í lofthjúpi framtíðarinnar.
Mynd: Earthlight DVD
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur28.10.2000
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
Haraldur Ólafsson veðurfræðingur. „Hver yrðu áhrif sólarljóssins á jörðina ef ekki væri raki í andrúmsloftinu sem dreifir og endurkastar því?“. Vísindavefurinn 28.10.2000. http://visindavefur.is/?id=1049. (Skoðað 18.6.2013).
Höfundur
Haraldur Ólafsson veðurfræðingurprófessor í veðurfræði við HÍ





