Spurning
Hvað er liðmús?
Spyrjandi
Ólavía Vilhjálmsdóttir
Svar
Liðmús (e. joint mouse) er aðskotahlutur í liðholi, einkum í hné eða olnboga. Oftast er um að ræða brjósk- eða beinörðu sem hefur losnað við sköddun á liðnum, til dæmis við slys eða vegna slitgigtar. Lesa má um slitgigt í svari Magnúsar Jóhannssonar við spurningunni: Hvað er slitgigt? Liðmús veldur því oft að liðurinn læsist og hreyfing orsakar sársauka. Einnig getur fylgt bólga og brak í liðnum. Liðmús er yfirleitt fjarlægð með skurðaðgerð.
Heimildir og mynd:
- Íslenska alfræðiorðabókin. Reykjavík: Örn og Örlygur, 1990.
- SymptomTracker
- Ontario Ministry of Agriculture and Food
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur9.2.2004
Flokkun:
Tilvísun
Þuríður Þorbjarnardóttir. „Hvað er liðmús?“. Vísindavefurinn 9.2.2004. http://visindavefur.is/?id=3992. (Skoðað 21.11.2009).
Höfundur
Þuríður Þorbjarnardóttirlíffræðingur



