Spurning

Er satt að hundar verði blindir fái þeir sykur?

Spyrjandi

Kristján Egilsson
Þorbjörn Ólafsson
Heiðrún Sigmarsdóttir
Guðmundur Andrésson

Svar

Hér er einnig svar við spurningunum:
  • Er venjulegt súkkulaði sem menn leggja sér til munns hættulegt hundum á einhvern hátt?
  • Geta hundar í alvöru orðið blindir ef þeir borða súkkulaði?
  • Ef dýri, til dæmis hundi, er gefið of mikið af sykri verður það þá blint?


Það er ekki alveg rétt að hundar verði blindir við það að fá sætindi. En eins og hjá mannfólkinu er ekki gott fyrir tennurnar að hundar borði mikil sætindi og eins eykst hætta á offitu. Offita og of mikil sætindi geta aukið líkur á sykursýki sem aftur getur aukið líkur á gláku en hún getur valdið skertri sjón og jafnvel blindu.

Óhóflegt sykurát hunda getur þannig leitt til blindu ef önnur skilyrði eru fyrir hendi, en hundurinn þarf að éta mikið af sætindum til þess að þetta geti gerst.

Mynd: joeshymanski.com

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur15.9.2003

Tilvísun

Guðbjörg Þorvarðardóttir. „Er satt að hundar verði blindir fái þeir sykur?“. Vísindavefurinn 15.9.2003. http://visindavefur.is/?id=3728. (Skoðað 21.11.2009).

Höfundur

Guðbjörg Þorvarðardóttirdýralæknir á Dýralæknastofu Dagfinns



Leit