Spurning

Hvað er mjólkursýra og hvaða tilgangi þjónar hún?

Spyrjandi

Hilmir Ingi Jónsson

Svar

Mjólkursýra verður til við "ófullkomið" niðurbrot eða bruna á glúkósa eða þrúgusykri í vöðvum og í rauðum blóðkornum, en glúkósi er sú sykurtegund sem er mikilvægust í lífríkinu. Mjólkursýran fer úr frumunum út í blóðið og berst með því til lifrarinnar. Í lifrinni breytist mjólkursýran aftur í glúkósa og berst síðan með blóðinu aftur til vöðva og rauðra blóðkorna. Þetta ferli nefnist mjólkursýruhringurinn. Við eðlilegar aðstæður getur mjólkursýruhringurinn séð fyrir um 40% af blóðsykri líkamans.

Við mikla líkamlega áreynslu eykst súrefnisþörf vöðvanna. Lungun ná þá ekki að sjá vöðvunum fyrir nógu miklu súrefni til að brjóta glúkósa fullkomlega niður. "Ófullkomið" niðurbrot glúkósa sem krefst minna súrefnis eykst því við áreynslu með tilheyrandi mjólkursýrumyndun í vöðvum. Við þetta hækkar styrkur mjólkursýru í blóðinu og það ástand varir svo lengi sem vöðvana skortir súrefni.

Áður fyrr var talið að aukinn styrkur mjólkursýru í vöðvum ylli harðsperrum, en nú hefur verið sýnt fram á að harðsperrur verða vegna skemmda á vöðvaþráðum.

Mynd: HB

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur9.3.2002

Tilvísun

Anna Ragna Magnúsardóttir. „Hvað er mjólkursýra og hvaða tilgangi þjónar hún?“. Vísindavefurinn 9.3.2002. http://visindavefur.is/?id=2169. (Skoðað 24.5.2013).

Höfundur

Anna Ragna Magnúsardóttirnæringarfræðingur



Leit


Vísindadagatalið

Janusz Korczak
(1878-1942)
( Fyrri Næsti )

Pólskur barnalæknir, kennslufræðingur og barnabókahöfundur. Rak munaðarleysingjahæli fyrir gyðingabörn í Varsjá og sýndi þeim virðingu, en lét svo lífið ásamt þeim.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans