Spurning

Er ætihvönn góð sem grasalyf og ef svo er, hvernig er hún þá matreidd?

Spyrjandi

Patricia Jonsson

Svar

Ætihvönn er ein merkasta lækningajurt Íslandssögunnar en hvönnin var notuð á Íslandi allt frá landnámi. Ætihvönnin var vel þekkt meðal fyrstu landnema á Íslandi. Auk þess að vera mikilvæg matjurt á Norðurlöndum og Bretlandseyjum var lækningamáttur hvannarinnar vel þekktur meðal norrænna manna. Ætihvönn óx einnig sunnar í Evrópu en sú norræna þótti kraftmeiri.

Þegar víkingar hófu verslunarferðir til Evrópulanda á níundu öld var ætihvönnin mikilvæg verslunarvara. Á haustin tóku menn með sér þurrkaðar hvannarætur sem notaðar voru sem gjaldmiðill í verslun við innfædda. Sjaldan er getið um nytjajurtir í íslenskum miðaldaritum en hvannir koma þó fyrir á nokkrum stöðum. Í Grágás er til dæmis kveðið á um viðurlög við stuldi á hvönn, útlegð eða sekt ef teknar voru hvannir í annarra garði.

Latneskt heiti ætihvannar er Angelica archangelica. Sagan segir að þegar bólusóttarfaraldur fór um Evrópu 1665 þá hafi munk einn dreymt að engill hafi sýnt honum jurt, ætihvönn, sem gæti læknað menn af drepsóttinni. Munkurinn nefndi jurtina Angelica archangelica eftir englinum og hefur nafnið verið notað síðan. Bólusótt er smitsjúkdómur og var oftast banvænn en síðari tíma rannsóknir hafa sýnt að í ætihvönninni eru ýmis sýkladrepandi efni og hefði hún því getað komið að gagni.

Notkun ætihvannar
Hvönnin var öll notuð, ræturnar sem voru þurrkaðar, blaðstilkar, laufið og fræin. Áhrifin voru einkum talin felast í því að styrkja og verma meltingarfærin, örva meltinguna, eyða spennu og losa slím. Ætihvönn var einkum talin góð fyrir fólk sem var að ná sér eftir erfið veikindi, ef það skorti þrek og kraft.

Ætihvönn var notuð við meltingartruflunum svo sem krampa og vindi í meltingarfærum og gegn kvilla í lifur. Hvönnin var talin mjög góð til að losa slím úr öndunarfærum og var hún notuð við bronkítis og brjósthimnubólgu og öðrum lungnakvillum. Fræin voru talin góð við krabbameini.

Algengast var að búa til te og seyði en einnig jurtaveig (tinktúru í 45% vínanda) af laufi, rót eða fræjum. Áherslan á notkun hvannar við kvillum í öndunarfærum og meltingarfærum er skiljanleg þegar haft er í huga að fólk bjó oft í röku og jafnvel köldu húsnæði og maturinn var oft gamall og jafnvel skemmdur.

Ætihvönnin er ekki aðeins forn lækningajurt, hún er einnig vinsæl sem bragðefni. Ætihvönn hefur verið notuð sem bragðefni í framleiðslu á líkjörum (Chartreuse og Benedictine) og Vermouth og Dubonnet. Bragðefnin úr hvönn hafa einnig verið notuð í framleiðslu á gini og Muscatel Rínarvíni að ógleymdu hvannarótarbrennivíni. Ætihvönn er einnig notuð sem matvara, sem fersk kryddjurt á kjöt og fisk. Matvæla- og lyfjaeftirlitið í Bandaríkjunum (FDA) samþykkir ætihvönnina til neyslu (Generally Regarded as Safe).

Íslenskar rannsóknir á virkni ætihvannar
Rannsóknir á Raunvísindastofnun hafa sýnt að í ætihvönn eru efni sem verka á bakteríur, veirur, sveppi og jafnvel á krabbameinsfrumur, og þar eru efni sem virðast örva ónæmiskerfið. Þessar niðurstöður staðfesta þá reynsluþekkingu liðinna kynslóða, að ætihvönnin getur verið mjög virk lækningajurt.

Virkni afurða úr íslenskum lækningajurtum hefur verið borin saman við erlendar vörur úr samskonar jurtum sem vaxa á suðlægari slóðum. Virkni íslensku jurtanna hefur reynst mun meiri en þeirra erlendu. Þetta staðfestir tiltrú manna frá víkingatímanum.




Mynd eftir Arne Anderberg:Den Virtuella floran

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur3.10.2001

Tilvísun

Sigmundur Guðbjarnason. „Er ætihvönn góð sem grasalyf og ef svo er, hvernig er hún þá matreidd?“. Vísindavefurinn 3.10.2001. http://visindavefur.is/?id=1888. (Skoðað 19.6.2013).

Höfundur

Sigmundur Guðbjarnasonprófessor emeritus í efnafræði við HÍ



Leit


Vísindadagatalið

György Lukács
(1885-1971)
( Fyrri Næsti )

Ungverskur heimspekingur, bókmenntafræðingur og marxisti, einn af höfundum vestræns marxisma. Fjallaði m.a. um hlutgervingu, stéttarvitund og um raunsæi í bókmenntum.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans

Háskóli unga fólksins 2013