Titill

Afmælismálþing Vísindavefsins

Frétt

Vísindavefur HÍ er tíu ára í dag. Á afmælisdaginn verður haldið málþing um vísindamiðlun í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins. Málþingið fer fram þann 29.1.2010 frá klukkan 14-16.

Dagskráin er þessi:

  • Vísinda- hvað?, Guðrún Bachmann, kynningarstjóri HÍ
  • Að hugsa á íslensku - um fræðin, Sigurður Svavarsson, útgefandi hjá Opnu
  • Vísinda- og rannsóknamiðlun til almennings: Þáttur HÍ og fjölmiðla, Ágúst Kvaran, prófessor í eðlisefnafræði
  • Vísindi efla alla dáð - en eiga þau erindi í fréttir?, Valgerður Jóhannsdóttir, aðjúnkt við meistaranám í blaða- og fréttamennsku
  • Vísindamiðlun og ungt fólk: Tölum við sama tungumálið?, Margrét Björk Sigurðardóttir, líffræðingur og starfsmaður Vísindavefsins
Málþingið er öllum opið á meðan húsrúm leyfir.

Þeir sem lifa og hrærast á Fasbók geta fengið nánari upplýsingar um málþingið á þessari Fasbókar-síðu. Þar er einnig hægt að tilkynna komu sína á málþingið.





Fyrirlestrarnir voru hluti af 10 ára afmæli Vísindavefsins og lokahátíð YOSCIWEB-verkefnisins

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur22.1.2010

Flokkur:

Vísindafréttir

Tilvísun

Ritstjórn Vísindavefsins. „Afmælismálþing Vísindavefsins“. Vísindavefurinn 22.1.2010. http://visindavefur.is/article.php?id=85. (Skoðað 25.5.2013).

Höfundur

Ritstjórn Vísindavefsins



Leit


Vísindadagatalið

Kristján Eldjárn
(1916-1982)
( Fyrri Næsti )

Fornleifafræðingur og síðar forseti, skrifaði m.a. bókina Kuml og haugfé 1957 og átti mikinn þátt í að efla áhuga á fornleifafræði hér á landi.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans