Titill
Íslenskt stjörnukort fyrir desembermánuð
Frétt
Á Stjörnufræðivefnum er hægt að nálgast íslenskt stjörnukort ásamt leiðarvísi fyrir byrjendur í stjörnuskoðun. Kortið miðast við himininn yfir Íslandi eins og hann lítur út á kvöldin í desember. Á vefnum er einnig stjörnukort af himninum sem uppfærist í rauntíma.Margt er að sjá á næturhimninum í desember á alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar. Eitt af því sem vekur athygli er að tunglið verður fullt tvisvar sinnum í mánuðinum, bæði í upphafi hans og á síðasta degi ársins, gamlársdegi. Þetta gerist stöku sinnum en síðasti mánuðurinn sem hafði tvö full tungl var júnímánuður 2007.

Sjöstirnið er auðþekktasta stjörnuþyrpingin á næturhimninum.
Fyrir neðan Sjöstirnið á himninum er bjart og fallegt stjörnumerki sem nefnist Óríon. Það er auðþekkt á þremur björtum stjörnum í belti Óríons sem oft eru nefndar Fjósakonurnar. Fyrir neðan Fjósakonurnar er sverð Óríons. Í miðju þess er Sverðþokan sem sést með berum augum og er auðvelt að skoða í handsjónauka eða stjörnusjónauka. Sverðþokan er í raun risavaxin ,,stjörnuverksmiðja" og hefur Hubbles-sjónaukinn náð myndum af sólkerfum sem eru að fæðast inni í miðri þokunni.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur7.12.2009
Flokkur:
VísindafréttirTilvísun
Ritstjórn Vísindavefsins. „Íslenskt stjörnukort fyrir desembermánuð“. Vísindavefurinn 7.12.2009. http://visindavefur.is/article.php?id=80. (Skoðað 24.5.2013).
Höfundur
Ritstjórn Vísindavefsins




