Titill

Íslenskt stjörnukort fyrir byrjendur í stjörnuskoðun

Frétt

Á Stjörnufræðivefnum er hægt að nálgast íslenskt stjörnukort ásamt leiðarvísi fyrir byrjendur í stjörnuskoðun. Kortið miðast við himininn yfir Íslandi eins og hann lítur út á milli níu og tíu á kvöldin í september. Á vefnum er einnig stjörnukort af himninum sem uppfærist í rauntíma.

Á meðal þess sem hægt er að sjá í september er reikistjarnan Júpíter en hún er bjartasta stjarnan á kvöldhimninum. Undanfarin ár hefur Júpíter verið mjög sunnarlega á himninum og þess vegna varla sést frá Íslandi. Núna er hann hins vegar vel greinilegur og mun sjást enn betur á næstu árum.


Mynd af rauða blettinum á Júpíter sem Galíleó-könnunarfarið tók
27. ágúst 1996.
Skömmu eftir sólarlag kemur Karlsvagninn í ljós á vesturhimni. Hann er sennilega það stjörnumynstur sem flestir þekkja á næturhimninum.

Fræðist meira um stjörnur á himninum yfir Íslandi í septembermánuði á Stjörnufræðivefnum
Mynd:
  • APOD. Sótt 31.8.2011.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur31.8.2009

Flokkur:

Vísindafréttir

Tilvísun

Ritstjórn Vísindavefsins. „Íslenskt stjörnukort fyrir byrjendur í stjörnuskoðun“. Vísindavefurinn 31.8.2009. http://visindavefur.is/article.php?id=76. (Skoðað 20.6.2013).

Höfundur

Ritstjórn Vísindavefsins



Leit


Vísindadagatalið

Marteinn Lúter
(1483-1546)
( Fyrri Næsti )

Þýskur guðfræðingur, oft talinn upphafsmaður siðaskiptanna. Andmælti aflátssölu og valdi páfans, taldi Biblíuna einu heimildina um orð Guðs og lagði áherslu á lestur hennar.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans