Titill
Af hverju gjósa fjöll? Úrslit í spurningakeppni Vísindavefsins og Forlagsins
Frétt
Á Vísindavöku 2011 fengu gestir að spreyta sig á léttri spurningakeppni um eldgos og eldfjöll og var öll svörin að finna í nýútkominni bók sem nefnist Af hverju gjósa fjöll? Spurningar og svör af Vísindavefnum um eldgos.Alls skiluðu tæplega 200 manns lausnum í keppninni og á mánudaginn voru vinningshafarnir dregnir út. Þeir fá í verðlaun bókina Af hverju gjósa eldfjöll? og geta sótt eintak á skrifstofu Forlagsins með því að framvísa tölvuskeyti um úrslitin.
Þessir þátttakendur svöruðu öllum spurningunum rétt og voru dregnir út. Við óskum þeim innilega til hamingju!
- Alexander Gunnar Kristjánsson, 14 ára
- Elvar Pierre, 10 ára
- Gunnar Tumi, 8 ára
- Inga Rut Victorsdóttir, 15 ára
- Ólafur Tryggvi Egilsson, 9 ára
- Róbert Svansson, 14 ára
- Sigurlaug M. Hreinsdóttir, 26 ára
- Særún Sigurjónsdóttir, 6 ára
- Sölvi Þrastarson, 21 árs
- Ugla Þuríður, 12 ára

Þeir sem ekki komust á Vísindavökuna að þessu sinni eða fengu ekki eintak af spurningakeppninni geta skemmt sér við að merkja við rétt svör hér fyrir neðan:
HVAÐ ER HEITUR REITUR?
( ) Svæði þar sem ekkert kostar að hringja í eldfjallafræðinga
( ) Svæði þar sem heitt efni rís úr iðrum jarðar
( ) Svæði þar sem hitastig er að jafnaði yfir 20°C allan ársins hring
HVERNIG VÆRI UMHORFS Á ÍSLANDI EF ÞAR VÆRI EKKI HEITUR REITUR?
( ) Þá væri Ísland ekki til sem eyja
( ) Þá væri einn stór jökull yfir öllu landinu
( ) Alveg eins og í dag, nema hér væri engin eldvirkni
HVERSU MIKIÐ HRAUN KOM UPP Í OFURGOSINU Í COLORADO FYRIR UM 28 MILLJÓNUM ÁRA?
( ) Nóg til að þekja allan Vatnajökul og Mýrdalsjökul með 1 m þykkri hraunbreiðu
( ) Nóg til að þekja allt Ísland með 1 m þykkri hraunbreiðu
( ) Nóg til að þekja allt Ísland með 30 m þykkri hraunbreiðu
AF HVERJU ERU ÞRUMUR OG ELDINGAR SVONA ALGENGAR Í ELDGOSUM?
( ) Af því að vísindamenn hafa gleymt að setja eldingavara við eldfjöll
( ) Af því að rafhleðslur skiljast oft að í gosmekki frá eldfjalli
( ) Af því að eldgos koma oft eins og þrumur úr heiðskíru lofti
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur28.9.2011
Flokkur:
VísindafréttirTilvísun
Ritstjórn Vísindavefsins. „Af hverju gjósa fjöll? Úrslit í spurningakeppni Vísindavefsins og Forlagsins“. Vísindavefurinn 28.9.2011. http://visindavefur.is/article.php?id=168. (Skoðað 19.6.2013).
Höfundur
Ritstjórn Vísindavefsins





