Titill
Gćđi íslenskra háskóla
Frétt
Nú er komin út ný skýrsla Ríkisendurskođunar ţar sem bornir eru saman fjórir íslenskir háskólar: Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri, sem báđir eru ríkisreknir, og Háskólinn í Reykjavík og Háskólinn á Bifröst, sem eru einkareknir. Sérstaklega var skođađ hver kostnađur vćri viđ kennslu, hversu vel fjármagn til hennar og vinnuafl vćri nýtt, og menntun kennara og virkni ţeirra í rannsóknum. Teknar voru fyrir ţrjár greinar: Viđskiptafrćđi, lögfrćđi og tölvunarfrćđi.Í skýrslunni kemur fram ađ Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík komu yfirleitt mun betur út en ađrir íslenskir háskólar sem fjallađ var um. Háskóli Íslands hafđi enn fremur vinninginn í níu atriđum af ellefu sem könnunin tók til. Háskóli Íslands var almennt ódýrari, skilvirkari og međ betri akademíska stöđu en ađrir háskólar. Ánćgja nemenda mćldist ţó mest í Háskólanum í Reykjavík, og var almennt meiri hjá nemendum einkareknu skólanna en ţeim ríkisreknu. Sömuleiđis var brottfall minna í einkareknu skólunum tveimur. Ţetta telur Ríkisendurskođun međal annars vera vegna mismunandi fjármögnunar og tekna skólanna.
Athuga verđur ađ könnunin tekur til áranna 2003-2005, svo veriđ getur ađ innbyrđis stađa háskóla á Íslandi hafi eitthvađ breyst frá ţessum tíma. Enn fremur setja skýrsluhöfundar fyrirvara á túlkun niđurstađna, ţar sem inntak, kennsluađferđir og námsmat skólanna séu ólík og ţví ef til vill ekki ađ fullu samanburđarhćf. Ţeir segja enn fremur ađ mćlikvarđar sem notađir voru geti ađeins gefiđ vísbendingu, en ekki háheilagan sannleik, um ţau atriđi sem borin voru saman. Ţó telja ţeir ađ [niđurstöđurnar] séu nćgilega traustar til ađ unnt sé ađ greina mun milli skóla.
Frekara lesefni:
- Skýrsla Ríkisendurskođunar, Kostnađur, skilvirkni og gćđi háskólakennslu: Viđskiptafrćđi, lögfrćđi, tölvunarfrćđi.
- Hverjir eru 5 bestu háskólar í heimi og hvađ kostar ađ stunda ţar nám? eftir Heiđu Maríu Sigurđardóttur.
Um ţessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur14.6.2007
Flokkur:
VísindafréttirTilvísun
HMS. „Gćđi íslenskra háskóla“. Vísindavefurinn 14.6.2007. http://visindavefur.is/article.php?id=12. (Skođađ 22.5.2013).
Höfundur
HMS




