Titill

Tímamótaritgerðir Einsteins á íslensku

Frétt

Þorsteinn Vilhjálmsson, prófessor í eðlisfræði og vísindasögu og fyrrverandi ritstjóri Vísindavefsins, hefur hlotið styrk úr Almanakssjóði til að vinna að útgáfu á bókinni Efni og eindir, ljós og skammtar, með þýðingu á ritgerðum eftir Albert Einstein frá árinu 1905 ásamt inngangsorðum og öðru stoðefni fyrir almenna íslenska lesendur.

Í bókinni verða fimm tímaritsgreinar eftir Einstein sem birtust allar á árinu 1905 en það hefur verið kalla ár kraftaverkanna í lífi höfundarins. Fyrstu tvær greinarnar fjalla um sameindir efnisins, stærð þeirra og aðra eiginleika og og áhrif þeirra á mælanleg atriði. Síðan koma tvær greinar um takmörkuðu afstæðiskenninguna og að lokum tímamótagrein um ljósröfun og ljóseindir.

Fyrirhugað er að bókin komi út hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi. Höfundar inngangsorða og stoðefnis auk Þorsteins eru eðlisfræðingarnir Jakob Yngvason og Þorsteinn Halldórsson. Reynt verður að gera efnið eins aðgengilegt almenningi og kostur er.

Almanakssjóður var stofnaður árið 1973. Markmið sjóðsins er meðal annars að styrkja rannsóknir í stjarnfræði og rímfræði, stærðfræði og stærðfræðilegri eðlisfræði og útgáfu vísindalegra rita í þessum fræðum. Þetta er annar styrkurinn sem veittur er úr sjóðnum á þessu ári.

Frekara lesefni á Vísindavefnum:Mynd:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur6.12.2010

Flokkur:

Vísindafréttir

Tilvísun

Ritstjórn Vísindavefsins. „Tímamótaritgerðir Einsteins á íslensku“. Vísindavefurinn 6.12.2010. http://visindavefur.is/article.php?id=115. (Skoðað 23.5.2013).

Höfundur

Ritstjórn Vísindavefsins



Leit


Vísindadagatalið

Stefán Stefánsson
(1863-1921)
( Fyrri Næsti )

Grasafræðingur, skólamaður og alþingismaður, rannsakaði jurtir um allt land í mörg sumur og gaf út fyrstu Flóru Íslands. Lét sér annt um skólamál og vísindi.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans