Titill
Vísindavefurinn á búlgörsku með Ásdísi Rán
Frétt
Frá árinu 2007 hefur Vísindavefurinn verið í samstarfi við nokkra evrópska aðila sem miðla vísindum til almennings á Netinu. Einn þeirra heldur meðal annars úti síðu fyrir búlgörsk börn og hefur í hyggju að auka umfjöllun um nútímavísindi.Búlgörsku samstarfsaðilarnar hafa nýlega fengið leyfi til að þýða og birta í styttri útgáfu svör af Vísindavef HÍ á sinni síðu.
Innan tíðar geta búlgarskir krakkar þess vegna lesið um það hversu margar mismunandi sudokuþrautir,hversu djúpt íslenskir sjófuglar geta kafað, af hverju við höfum ritmál og hvert allar gasblöðrurnar fari sem fljúga upp í loftið á 17. júní.
Höfundar síðastanefnda svarsins eru veðurfræðingarnir Haraldur Ólafsson og Hrafn Guðmundsson. Þeir höfðu nokkrar áhyggjur af því að búlgörsku börnin mundu rugla þeim saman við aðra þekkta Íslendinga, nefnilega Ásdísi Rán og Garðar Gunnlaugsson. Vísindavefurinn telur það ólíklegt. Við vitum ekki til þess að Ásdís Rán hafi nokkurn tíma tengst rannsóknum á helínfylltum blöðrum og krakkarnir í Búlgaríu þekkja örugglega muninn á fótboltanum sem Garðar Gunnlaugsson sparkar í og léttum blöðrum. Vel gæti því farið svo að innan tíðar öðlist nýtt íslenskt par frægð í Búlgaríu, veðurfræðingarnir Haraldur og Hrafn!
Þess má geta að svör af Vísindavefnum hafa áður birst í franskri þýðingu og eins hafa verið birt tæplega 100 svör á ensku á Vísindavefnum.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur1.1.1999
Flokkur:
VísindafréttirTilvísun
Ritstjórn Vísindavefsins. „Vísindavefurinn á búlgörsku með Ásdísi Rán“. Vísindavefurinn 1.1.1999. http://visindavefur.is/article.php?id=111. (Skoðað 21.5.2013).
Höfundur
Ritstjórn Vísindavefsins




